Reykjavíkurprófastsdæmi eystra - um prófastsdæmið

 

Á skrifstofu prófastsdæmisins í Breiðholtskirkju starfa prófastur, Sr. Gísli Jónasson; héraðsprestur, Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson; héraðsprestur,
Sr. Bryndís Malla Elídóttir og skrifstofustjóri, Guðrún Júlíusdóttir.

 

  • Viðtalstími prófasts er þriðjudaga - föstudaga kl. 11.00 - 12:00
    í síma 567-4810, netfang hans er .

  •  

  • Skrifstofustjóri er við alla virka daga frá kl. 9:00 - 12:00 í síma 567-4810, fax 587-1502 og netfang prófastsdæmisins er .

  •  

  • Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma eystra og vestra er staðsett í Breiðholtskirkju, Þangbakka 5, 109 Reykjavík, sími 557-1666 og netfang . Valgerður Gísladóttir er framkvæmdastjóri ráðsins.
  •  

  • Æskulýðssamband Reykjavíkurprófastsdæma, ÆSKR, er með skrifstofu í Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, sími 580-0825, netfang . Starfsmaður ÆSKR er Dagný Halla Tómasdóttir.
    Sjá www.kirkjan.is/annall/aeskr/.
  •  

  • Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, netfang og Sr. Bryndís Malla Elídóttir héraðsprestar,
    netfang eru með skrifstofu í Breðholtskirkju. Sími þeirra er 567-4810.

 

Meðal þeirra verkefna sem prófastsskrifstofan annast er undirbúningur og framkvæmd margvíslegra námskeiða og funda og ýmiskonar þjónusta við starf söfnuðanna og sérþjónustunnar. Þá er leitað til prófastsskrifstofunnar með fyrirspurnir og beiðnir, bæði frá kirkjulegum aðilum utan prófastsdæmis, einstaklingum og fjölmiðlum.

 

Starf prófasts er samkvæmt 7. gr. starfsreglna um prófasta (nr. 734/1998) m.a. eftirfarandi:

 

“Prófastur er fulltrúi biskups í prófastsdæminu, trúnaðarmaður hans og ráðgjafi í kirkjulegum málum. Prófastur hefur í umboði biskups almenna tilsjón með kirkjulegu starfi í prófastsdæminu, stuðlar að því að það gangi sem best fyrir sig og lögum samkvæmt.

 

Prófastur er ráðgjafi og tilsjónarmaður presta og sóknarnefnda.

 

Prófastur, sem formaður héraðsnefndar, er í fyrirsvari fyrir prófastsdæmið að því er varðar sameiginleg málefni þess, gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Hann fylgist með því að réttur kirkjunnar sé virtur í hvívetna”.

 

Um héraðspresta segir m.a. í starfsreglum um presta (nr. 735/1998) að “héraðsprestur annist reglulega messuafleysingu, þar sem ástæða þykir til” (35. gr.) og “aðstoði prófast og presta við að skipuleggja fræðslumál á þjónustusvæði sínu” (36. gr.).


Reykjavíkurprófastsdæmi eystra   •   Skrifstofa í Breiðholtskirkju   •   Þangbakka 5   •   Sími: 567 4810   •   Netfang:

www.tru.is

Barnastarf þjóðkirkjunnar