Barnastarfshátíð Breiðholtssafnaðanna með Biskupi Íslands


  

  

  

  

  

  

  

  

  

  

• 4. maí 2010:

Barnastarfshátíð Breiðholtssafnaðanna með Biskupi Íslands

Það var enginn venjulegur sunnudagaskóli í Breiðholtskirkju sunnudaginn 18. apríl s.l. þegar börn mættu ásamt foreldrum eða öðrum forráðamönnum til Barnastarfshátíðar Breiðholtssafnaðanna.

Messan var hátíðleg og samt full af fjöri, því barnakórar frá öllum Breiðholtssöfnuðunum sungu og Biskupinn yfir Íslandi predikaði. Í lok messunnar var öllum boðið í pylsugrill í safnaðarheimilinu og tóku ungir sem aldnir hressilega til matar síns þar. Þessar myndir voru teknar við þetta tækifæri.

 


Reykjavíkurprófastsdæmi eystra   •   Skrifstofa í Breiðholtskirkju   •   Þangbakka 5   •   Sími: 567 4810   •   Netfang:

www.tru.is

Barnastarf þjóðkirkjunnar